Bláa Lónið leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga til að taka þátt í að þróa og móta rekstur á nýjum áfangastað í stórbrotnu landslagi Þjórsárdals.
Þar munu náttúra, vellíðan og einstök upplifun mynda eina heild. Gestir fá tækifæri til að endurnærast, tengjast landinu og njóta þjónustu í hæsta gæðaflokki.
Áfangastaðurinn samanstendur af Fjallaböðum, hóteli, gestastofu, smáhýsum, tjaldsvæði og fjölbreyttri þjónustu fyrir innlenda og erlenda gesti. Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni, virðingu fyrir náttúru, sérstöðu og menningu svæðisins — og viljum að starfsemin skapi verðmæti fyrir samfélagið og svæðið til framtíðar.
Við leitum að leiðtoga sem hefur drifkraft og metnað til að byggja upp framúrskarandi starfsemi, skapa sterka menningu og leiða teymi á þessum einstaka stað.
HELSTU VERKEFNI
- Leiða undirbúning reksturs fram að opnun.
- Bera ábyrgð á rekstri, árangri og áframhaldandi þróun.
- Byggja upp og leiða öflugt stjórnendateymi.
- Tryggja framúrskarandi upplifun gesta og starfsfólks.
- Stuðla að sjálfbærni, gæðum og öryggi starfseminnar
HÆFNISKRÖFUR
- Reynsla af rekstri víðtækrar þjónustustarfsemi.
- Sterk leiðtogafærni og reynsla af uppbyggingu og þróun teyma.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Reynsla af breytingastjórnun er kostur.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.
Ef þú vilt leiða rekstur nýs áfangastaðar þar sem náttúra, vellíðan og framúrskarandi þjónusta mynda eina heild, þá viljum við heyra frá þér.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar, sigrun.halldorsdottir@bluelagoon.is.
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst.
BLÁA LÓNIÐ
Bláa Lónið hefur um áratugaskeið verið leiðandi afl í íslenskri upplifunar- og vellíðunarferðaþjónustu. Við trúum á kraft náttúrunnar, gildi mannlegra tengsla og mikilvægi þess að skapa umgjörð sem eykur vellíðan, vekur innblástur og byggir á virðingu fyrir umhverfi og samfélagi. Í Þjórsárdal viljum við sameina þetta allt og skapa tilkomumikinn áfangastað sem byggir á sérstöðu staðsetningarinnar, styrkir nærsamfélagið og nýtir einstaka möguleika svæðisins með ábyrgum hætti.
