Nettó Iðavöllum leitar að öflugum og samviskusömum starfsmanni til að ganga til liðs við teymið í kjötdeild.
Umsækjandi þarf að vera orðninn 18 ára.
Nettó er einstaklega skemmtilegur og líflegur vinnustaður og hentar starfið einstaklingum af öllum kynjum.
Helstu verkefni:
- Pantanir á vörum
- Eftirlit með rýrnun
- Áfyllingar og framsetning vara
- Almenn umhirða og skipulag deildarinnar
- Önnur tilfallandi verkefni að beiðni verslunarstjóra
Hæfniskröfur:
- Jákvætt viðmót og góð þjónustulund
- Skipulögð og ábyrg vinnubrögð
- Sjálfstæði í starfi
- Þolir álag og getur unnið í hröðu starfsumhverfi
Annað:
- Heilsustyrkur
- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa.
- Velferðarþjónusta
Frekari upplýsingar veitir Katrín Dröfn Hilmarsdóttir verslunarstjóri, katrin.hilmarsdottir@netto.is
Samkaup hefur hlotið titilinn Menntafyrirtæki atvinnulífsins 2022 og einnig jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.
Samkaup rekur 62 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Prís, SPAR, Krambúðin og 10-11. Hjá félaginu starfa um 1400 starfsmenn í um 650 stöðugildum.
Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.
