Back to Jobs
Leikskólinn EngjaborgFull TimeEntry-levelPosted Today

Leikskólakennari / leiðbeinandi á Engjaborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi í fullt starf óskast til starfa við leikskólann Engjaborg í Grafarvogi. 

Leikskólinn Engjaborg tók til starfa árið 1994 í Grafarvogi. Leikskólinn er fyrir börn á aldrinum eins til sex ára. Þar dvelja að jafnaði um 70 börn á fjórum deildum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og gildum og áherslum leikskólans, einnig að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara æskilegt
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum kostur
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Hreint sakavottorð

Fríðindi í starfi

  • Sundkort
  • Menningarkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngusamningur ef notast er við almenningssamgöngur, gengið eða hjólað til vinnu.
  • 36 stunda vinnuvika.
  • Afsláttur og forgangur að leikskólaplássi fyrir barn/börn í Reykjavíkurborg

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Jónsson leikskólastjóri. olafur.jonsson@reykjavik.is, s. 8698224

Ready to apply? You'll be taken to Reykjavíkurborg's application page.
Leikskólakennari at Reykjavíkurborg