Back to Jobs
Reykjavíkurborg

Umsjónarkennari í 1. bekk

Reykjavíkurborg
VesturbæjarskóliFull TimeEntry-levelPosted Today

Vesturbæjarskóli auglýsir stöðu umsjónarkennara

Vesturbæjarskóli er skóli fyrir nemendur í 1.-7. bekk. Í skólanum eru rúmlega 300 nemendur og starfsmenn eru um 50. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti sem kennarar hafa sameinast um, verk- og listgreinakennslu, valtíma og útikennslu og markvisst er unnið að skólaþróun. Kennarar vinna í teymum og deila ábyrgð á námi og velferð nemenda. Skólabragurinn einkennist af jákvæðum anda, samstarfi og virðingu.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun.
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu námsumhverfi.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu nemenda í samráði við stjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Áhersla á góða samvinnu og teymiskennslu í árgöngum.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.

Staðan er laus frá 1. ágúst 2026. Um er að ræða 100% tímabundið starf til 31. júlí 2027.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Nánari upplýsingar gefur Margrét Einarsdóttir skólastjóri, margret.e@reykjavik.is 

Ready to apply? You'll be taken to Reykjavíkurborg's application page.
Umsjónarkennari í 1. bekk at Reykjavíkurborg