Back to Jobs
Reykjavíkurborg

Starfsmaður í stuðning/sérkennslu í leikskóla

Reykjavíkurborg
Leikskólinn EngjaborgFull TimeEntry-levelPosted Today

Starfsmaður í stuðning/sérkennslu á Engjaborg

Starfsmaður í stuðning/sérkennslu í fullt starf óskast til starfa við leikskólann Engjaborg í Grafarvogi. 

Leikskólinn Engjaborg tók til starfa árið 1994 í Grafarvogi. Leikskólinn er fyrir börn á aldrinum eins til sex ára. Þar dvelja að jafnaði um 70 börn á fjórum deildum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að veita barni/börnum með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
  • Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
  • Að vinna samkvæmt einstaklingsnámskrá.
  • Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna út frá gildum og áherslum leikskólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara æskilegt eða önnur menntun sem nýtist í starfinu.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum kostur
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Hreint sakavottorð

Fríðindi í starfi

  • Sundkort
  • Menningarkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngusamningur ef notast er við almenningssamgöngur, gengið eða hjólað til vinnu.
  • 36 stunda vinnuvika.
  • Afsláttur og forgangur að leikskólaplássi fyrir barn/börn í Reykjavíkurborg

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Jónsson leikskólastjóri. olafur.jonsson@reykjavik.is, s. 8698224

Ready to apply? You'll be taken to Reykjavíkurborg's application page.
Starfsmaður í stuðning/sérkennslu í leikskóla at Reykjavíkurborg