Velferðarsvið óskar eftir að ráða tvo metnaðarfulla og jákvæða einstaklinga með háskólamenntun á félags-, uppeldis- eða heilbrigðissviði til starfa í búsetuþjónustu fyrir fólk með geðrænar áskoranir.
Um er að ræða tvö 85% ótímabundinn störf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. september 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Starfið er krefjandi, gefandi og fjölbreytt. Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með fólki, búa yfir fagmennsku og vilja taka þátt í að efla þjónustu sem styður einstaklinga með geðrænar áskoranir til aukins sjálfstæðis, virkni og lífsgæða.
Búsetuþjónustan býr yfir öflugum og samheldnum starfsmannahópi þar sem lögð er áhersla á faglegt samstarf, gagnkvæman stuðning og sífellda þróun þjónustunnar. Starfsfólk fær tækifæri til að hafa áhrif á starfsemina, nýta þekkingu sína í daglegu starfi og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu þjónustunnar. Mikil áhersla er lögð á vellíðan starfsfólks, traust samstarf og fjölbreytt tækifæri til faglegrar þróunar.
Markmið búsetuþjónustunnar er að styðja einstaklinga með geðrænar áskoranir til sjálfstæðs lífs, auka lífsgæði þeirra og efla þátttöku í samfélaginu. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaðan stuðning, valdeflingu og virðingu fyrir óskum og þörfum hvers og eins.
Velferðarsvið vinnur samkvæmt hugmyndafræði valdeflingar og þjónandi leiðsagnar og er mikilvægt að starfsfólk tileinki sér þau gildi í daglegum störfum.
Helstu verkefni
- Veita þjónustunotendum faglegan stuðning og leiðsögn í daglegu lífi.
- Stuðla að auknu sjálfstæði, valdeflingu og samfélagslegri þátttöku þjónustunotenda.
- Taka þátt í framkvæmd, þróun og mati á einstaklingsbundnum stuðningi.
- Vinna samkvæmt markmiðum og þjónustuáætlunum þjónustunotenda.
- Taka þátt í teymisvinnu og samstarfi við aðstandendur og aðra fagaðila eftir því sem við á.
- Skráningar og önnur verkefni sem tengjast faglegri þjónustu.
- Taka þátt í almennum störfum á starfsstaðnum og stuðla að jákvæðu og uppbyggilegu starfsumhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun (B.S., B.A. eða B.Ed.) sem nýtist í starfi, svo sem á félags-, uppeldis- eða heilbrigðissviði.
- Reynsla af vinnu með fólki með geðrænar áskoranir er kostur.
- Reynsla af teymisvinnu er kostur.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og faglegur metnaður.
- Færni í mannlegum samskiptum og geta til að byggja upp traust sambönd.
- Sveigjanleiki, samviskusemi, jákvætt viðhorf og góð samstarfshæfni.
- Þekking og reynsla af velferðartækni er kostur
- Áhugi á og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna og auka lífsgæði þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Örn E. Torfason Forstöðumaður búsetuþjónustu í síma 460-1446 virka daga milli kl. 09:00 og 15:00.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð við umsóknir er í boði í Þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 30.08.2026.
