Við Hríseyjarskóla er laus til umsóknar ótímabundin staða félagsmiðstöðvarfulltrúa. Um er að ræða 20% starfshlutfall og er vinnutími breytilegur, bæði á dag- og kvöldtíma.
Hríseyjarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með um 16 nemendur í 1.-10. bekk. Framtíðarsýn skólans er að vera lærdómssamfélag þar sem nemendur, foreldrar og starfsmenn eru virkir þátttakendur og að allir sem komi skólanum á einn eða annan hátt, átti sig á þeim forréttindum sem smæð samfélagsins er og nálægðin við náttúruna býður uppá.
Skólinn er grænfána- og heilsueflandi skóli og er að innleiða uppbyggingarstefnuna.
Einkunnarorð skólans eru Hríseyjarskóli – skapandi samfélag.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.hriseyjarskoli.is
Félagsmiðstöðvarfulltrúi er starfsmaður grunnskóla og starfar innan málaflokks forvarna- og frístunda. Markmið innan málaflokksins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem virkni og forvarnir eru höfð að leiðarljósi. Viðfangsefni eru forvarnaverkefni og virkniúrræði sem stuðla að velferð nemenda á mið- og unglingastigi. Í því felst m.a. að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni og stuðning sem höfðar til ólíkra hópa.
Forvarnarteymi skóla skipuleggur og útfærir forvarnarfræðslu út frá stöðu forvarnarmála og þörfum hverju sinni. Félagsmiðstöðvarfulltrúi situr í forvarnarteymi og kemur forvarnarfræðslu til framkvæmdar.
Helstu verkefni eru:
- Skipulagning, undirbúningur og framkvæmd félagsmiðstöðva- og klúbbastarfs á mið- og unglingastigi frá byrjun ágúst og út júnímánuð í samráði við deildarstjóra, samstarfsfólk og þátttakendur í starfinu.
- Tryggja öryggi og vellíðan barna og unglinga í félagsmiðstöðvastarfi og nýta úrræði innan starfsins og samstarf til þess að fyrirbyggja og bregðast við óæskilegri hegðun.
- Vinna að ýmsum samstarfsverkefnum á milli félagsmiðstöðva grunnskóla og annarra sem koma að málefnum barna og ungmenna í samfélaginu, til að mynda almennt félagsmiðstöðvarstarf, dansleikir á vegum skóla, hinsegin félagsmiðstöð, Samfés, hæfileikakeppni o.fl.
- Öflun, utanumhald og miðlun upplýsinga og tölulegra gagna er varða starfsemi félagsmiðstöðva.
- Skipuleggur, undirbýr og framkvæmir forvarnaverkefni og fræðslu.
- Starfar í forvarnarteymi skólans.
- Ber kennsl á helstu áhættuþætti í umhverfi barna og unglinga og bregst við þeim.
- Vinnur með grunnskólanemendum í 5. - 10. bekk að félagsfærni, jákvæðum samskiptum og sjálfstyrkingu í samstarfi við deildarstjóra og umsjónarkennara.
- Styður við einstaka viðburði hjá nemendum í 8. - 10. bekk í samráði við nemendur.
- Starfsmaður tekur þátt í stefnumótunarvinnu samkvæmt nánari ákvörðun yfirmanna, deildarstjóra og skólastjóra.
- Vera í góðu samstarfi við forsjáraðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í tómstunda- og félagsmálafræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi (BA/BS/B.Ed).
- Þekking á starfsemi félagsmiðstöðva.
- Nýleg og farsæl reynsla af vinnu með ungu fólki.
- Nýleg og farsæl reynsla af starfi við forvarnir og fræðslu.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Framtakssemi og frumkvæði.
- Samstarfsvilji og samskiptafærni.
- Færni í miðlun og framsetningu upplýsinga.
- Reynsla af verkefna- og viðburðastjórnun er æskileg.
- Mjög góð tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð enskukunnátta.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um störf umsækjanda, menntun og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi félagsmiðstöðvarfulltrúa.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Visku.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórunn Björg Arnórsdóttir skólastjóri, netfang thorarno@akmennt.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2026.
