Back to Jobs
Akureyrarbær

Leikskólinn Tröllaborgir: Starfsfólk í leikskóla

Akureyrarbær
TröllaborgirTemporaryEntry-levelPosted Today

Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða starfsfólk í 80-100% stöður. Um er að ræða tímabundnar ráðningar út næsta skólaár, til 2. júlí 2027, með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Ef starfshlutfall er lægra en 100% felst starfið í því að viðvera verði til kl. 16 suma daga vikunnar, en aðrir dagar verði styttri.

Æskileg er að viðkomandi geti hafið störf 1. september eða samkvæmt samkomulagi.

Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.

Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.

Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.karellen.is

Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna undir stjórn deildarstjóra.
  • Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Tekur þátt í faglegu starfi skólans undir stjórn deildarstjóra og eða skólastjóra.
  • Tekur þátt í mati á starfsemi leikskólans undir stjórn deildarstjóra og eða skólastjóra.

Grunnkröfur:

  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum.
  • Mikilvægt er að þeir eigi auðvelt með mannleg samskipti og séu tilbúnir til að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf með börnum.
  • Viðkomandi þurfa að vera sveigjanlegir í starfi og tilbúnir að ganga ýmis störf.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynleg.
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af starfi í leikskóla eða með börnum.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Starfsfólk í leikskóla starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Akureyrarbæjar.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Einingar-Iðju og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Egilsdóttir skólastjóri í síma 8224892 og 469 4700, netfang: annaegils@akmennt.is og Harpa Hauksdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 469 4707, netfang: harpahauks@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2026.

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.
Leikskólinn Tröllaborgir: Starfsfólk í leikskóla at Akureyrarbær