Back to Jobs
Reykjavíkurborg

Viðburðarfulltrúi

Reykjavíkurborg
Skr. borgarstjóra og borgarritaraFull TimeMid-levelPosted Today

Viðburðafulltrúi hefur umsjón með opinberum móttökum í Ráðhúsi og Höfða fyrir skrifstofu borgarstjóra og borgarritara ásamt því að sjá um móttökur og aðra viðburði skrifstofunnar.

Skrifstofan þjónustar embætti borgarstjóra og borgarritara, undirbýr samræmda stefnumörkun Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á samhæfðri stefnumörkun í samskipta- og upplýsingamálum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stefnumótun og gerð verklags varðandi móttökur og aðra opinbera viðburði skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
  • Tengiliður vegna viðburða í Ráðhúsi
  • Þátttaka í stefnumótun varðandi notkun á Höfða
  • Innleiðing og eftirfylgni á verklagi varðandi móttökur og aðra viðburði á vegum skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
  • Ábyrgð á undirbúningi, mönnun viðburða og framkvæmd móttaka á vegum Reykjavíkurborgar
  • Heldur utan um sýningar og menningarviðburði í Höfða í samvinnu við hlutaðeigandi aðila
  • Er til ráðgjafar varðandi viðburði, móttökur og gestaheimsóknir á sviðum borgarinnar
  • Samþykkt reikninga vegna móttaka, viðburða, gjafakaupa og fl.
  • Situr í Viðburðastjórn Ráðhúss Reykjavíkur
  • Þátttaka í samstarfi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
  • Önnur verkefni fyrir skrifstofu borgarstjóra og borgarritara samkvæmt ákvörðun yfirmanns

Menntun og reynsla

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á siðareglum og móttöku opinberra gesta (protocol) æskileg
  • Reynsla af viðburðastjórnun æskileg
  • Reynsla af sambærilegum störfum á vegum hins opinbera eða hjá stærri fyrirtækjum/stofnunum æskileg
  • Fagmennska, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi skilyrði
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og framkomu
  • Íslenskukunnátta C2 og enskukunnátta C1 skv. evrópska tungumálarammanum

Laun eru greidd í samræmi við kjarasamninga Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2026. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, þar sem koma fram upplýsingar um menntun og fyrri störf, ásamt kynningarbréfi.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Tinna Garðarsdóttir í gegnum netfangið tinna@reykjavik.is

Ready to apply? You'll be taken to Reykjavíkurborg's application page.
Viðburðarfulltrúi at Reykjavíkurborg