Back to Jobs
Akureyrarbær

Glerárskóli: Skólaliði

Akureyrarbær
GlerárskóliFull TimePosted Today

Laus er til umsóknar 50-60% staða skólaliða við Glerárskóla á Akureyri. Starfið er unnið á morgnana og býðst jafnframt möguleiki á viðbótarstarfi við frístund skólans eftir hádegi. Um er að ræða ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla líkamlegt heilbrigði.

Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.

Glerárskóli er Erasmus+ vottaður og hnetulaus skóli.

Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Starf skólaliða er fjölbreytt og felur m.a. í sér gæslu og aðstoð við nemendur í starfi og leik á vegum skólans, aðstoð í mötuneyti, ræstingar og margt fleira. Skólaliðar starfa undir verkstjórn umsjónarmanns húsa og eru í samstarfi við alla aðra starfsmenn skólans.

Helstu verkefni skólaliða eru:

  • Móttaka nemenda og umsjón með þeim á og fyrir/eftir skólatíma
  • Frímínútnagæsla innan- og utanhúss
  • Almenn gæsla og eftirlit með nemendum í skóla og frístund
  • Eftirlit með húsnæði og búnaði
  • Afgreiðsla, umsjón og gæsla í matar- og kaffitímum
  • Tilsjón og aðstoð við nemendur vegna margvíslegra verkefna
  • Umsjón með kaffistofu starfsfólks og starfsmannaaðstöðu skólans
  • Ræsting samkvæmt starfsáætlun

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á að starfa með börnum á grunnskólaaldri og leikni í samskiptum við börn og fullorðna
  • Reynsla af störfum með börnum æskileg
  • Reynsla af þrifum er kostur
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni, stundvísi og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og ábyrgð
  • Samviskusemi og reglusemi
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Hæfni til að fylgja fyrirframgefnu skipulagi
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu

Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um fyrri störf umsækjanda, auk þeirra verkefna sem viðkomandi hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni til að sinna starfi skólaliða í grunnskóla.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar - Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Skúladóttir skólastjóri, netfang eyrun@akmennt.is og í síma 461-2666.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 2026.

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.
Glerárskóli: Skólaliði at Akureyrarbær