Back to Jobs
Akureyrarbær

Glerárskóli: Stuðningsfulltrúi / Starfsfólk með stuðning í skólastarfi

Akureyrarbær
GlerárskóliPart TimeEntry-levelPosted Today

Í Glerárskóla eru lausar stöður stuðningsfulltrúa/starfsfólks með stuðning í skólastarfi. Um er að ræða tímabundnar stöður í um 60% starfshlutfalli, þar sem starfað er fyrir hádegi, með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi. Fyrir áhugasama er einnig möguleiki á viðbótarstarfi í frístund skólans eftir hádegi.

Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla líkamlegt heilbrigði.

Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.

Glerárskóli er Erasmus+ vottaður og hnetulaus skóli.

Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að jákvæðum og hugmyndaríkum einstaklingum sem sýna frumkvæði, búa yfir sveigjanleika í starfi og eiga auðvelt með mannleg samskipti. Viðkomandi þarf að hafa metnað fyrir hönd nemenda, leggja áherslu á vellíðan þeirra og árangur og taka virkan þátt í öflugu samstarfi við starfsfólk og stjórnendur skólans.

Helstu verkefni:

  • Að aðstoða og leiðbeina nemendum í námi og leik
  • Að aðstoða einstaklinga með sérþarfir
  • Að aðstoða nemendur bæði í kennslustundum og utan þeirra
  • Að leggja áherslu á að þroska félagslega hæfni nemenda í námi og starfi
  • Að starfa í teymi stuðningsfulltrúa og einnig í teymi með kennurum
  • Gæsla inni/úti og ýmis önnur störf sem tengjast nemendum
  • Aðstoð við einstaka nemendur og/eða hópa
  • Að starfa í samvinnu við aðra starfsmenn skólans, undir stjórn kennara og stjórnenda
  • Önnur störf sem kennari og/eða stjórnandi felur viðkomandi

Hæfniskröfur:

  • Æskilegt er að hafa lokið stuðningsfulltrúanámi
  • Hefur yfir að ráða hvers kyns hæfileikum, menntun eða þekkingu sem er til þess fallin að auðga skólastarfið
  • Áhugi á að starfa með börnum á grunnskólaaldri og leikni í samskiptum við börn
  • Reynsla af störfum með börnum er æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni, stundvísi og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og ábyrgð
  • Samviskusemi og reglusemi
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
  • Hæfni til að fylgja fyrirframgefnu skipulagi
  • Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu

Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um fyrri störf umsækjanda og menntun, auk þeirra verkefna sem viðkomandi hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni til að sinna starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar - Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Skúladóttir skólastjóri, netfang eyrun@akmennt.is og í síma 461-2666.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 2026.

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.
Glerárskóli: Stuðningsfulltrúi / Starfsfólk með stuðning í skólastarfi at Akureyrarbær