Back to Jobs
Akureyrarbær

Oddeyrarskóli: Kennari, danska og íslenska

Akureyrarbær
AkureyriFull TimeEntry-levelPosted Today

Laus er til umsóknar tímabundin staða kennara í 20-70% starfshlutfalli. Um er að ræða kennslu í dönsku á mið- og unglingastigi í 50% og íslensku á unglingastigi í 20%. Til greina kemur að ráða kennara í hvora grein fyrir sig. Ráðning er til 31.07.2027 með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Í Oddeyrarskóla vinnum við saman að því að skapa skólasamfélag sem nær árangri. Það einkennist af jákvæðum skólabrag, áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum. Oddeyrarskóli er heilsueflandi grunnskóli. Unnið er eftir hugmyndafræði SMT og eru einkunnarorð skólans ábyrgð, virðing og vinátta. Oddeyrarskóli er við Víðivelli á Akureyri og er fjöldi nemenda um 160. Kennarar skólans starfa saman í teymum og nemendur vinna gjarnan saman í aldursblönduðum hópum. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans, www.oddeyrarskoli.is

Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Starfssvið:

Kennari er hluti af kennarateymi stigsins, sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfi til kennslu í grunnskóla
  • Framhaldsmenntun er kostur
  • Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og hæfileikum nemenda
  • Þekking og reynsla af teymisvinnu og teymiskennslu
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Þekking á upplýsingatækni og leiðum til að nýta tækni í kennslu
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Samskiptafærni
  • Reglusemi, samviskusemi og stundvísi
  • Áhugi á kennslu og vinnu með börnum
  • Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, reynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi kennara.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Allar nánari upplýsingar veita Anna Bergrós Arnarsdóttir skólastjóri aber@akmennt.is og Margrét Th. Aðalgeirsdóttir maggath@akmennt.is og Fjóla Kristín Helgadóttir fkh@akmennt.is deildarstjórar. Einnig er hægt að leita upplýsinga í síma 460-9550.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2026

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.
Oddeyrarskóli: Kennari, danska og íslenska at Akureyrarbær