Í Giljaskóla er laus til umsóknar staða Stuðningsfulltrúa / Starfsmanns í skóla með stuðning á miðstigi. Starfshlutfallið er 69,7% og vinnutíminn er frá kl. 8-14. Um er að ræða ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Í Giljaskóla eru tæplega 400 nemendur í 1. – 10. bekk. Giljaskóli starfar eftir samskipta- og uppeldisstefnu sem nefnist Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging sjálfsaga. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er sérdeild sem sinnir kennslu og þjálfun barna með ýmiskonar fatlanir. Giljaskóli er framsækinn skóli, hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta.
Einkunnarorð Giljaskóla eru Ábyrgð – Virðing – Vinsemd
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.giljaskoli.is
Helstu verkefni eru:
- Tilsjón og aðstoð við nemendur með sérþarfir.
- Aðstoðar kennara við að framfylgja náms- og starfsáætlun.
- Veitir sértæka og/eða almenna aðstoð við einstaka nemanda í námi og við athafnir daglegs lífs.
- Frímínútnagæsla og almennt eftirlit með nemendum í skólahúsnæði.
- Fylgd með nemendum í íþróttir, sund og vettvangsferðir.
- Önnur verkefni sem kennari og eða skólastjórnandi felur viðkomandi.
- Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum samkvæmt uppbyggingarstefnu skólans.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað starfsfólk skólans og aðstandendur.
- Leitast við að virkja alla nemendur óháð getu og þroska í fjölbreytt verkefni og tekur fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur:
- Æskilegt er að hafa lokið stuðningsfulltrúanámi.
- Hefur yfir að ráða hvers kyns hæfileikum, menntun eða þekkingu sem er til þess fallin að auðga skólastarfið.
- Krafa er gerð um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti.
- Reynsla af starfi með börnum í leik- eða grunnskóla og/eða úr frístundastarfi er kostur.
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Jákvæðni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsókninni skulu fylgja upplýsingar um fyrri starfsreynslu og þau verkefni sem viðkomandi hefur unnið að.
Starfsmenn skólans gegna starfinu samkvæmt grunnskólalögum, reglugerðum, starfslýsingum, kjarasamningum og mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eftir því sem við á.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veitir Elías Gunnar Þorbjörnsson skólastjóri, netfang elias@akmennt.is eða Aðalheiður Skúladóttir deildarstjóri allas@akmennt.is eða í síma 462-4820.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst 2026.
