Back to Jobs
Reykjavíkurborg

Skólaliði í Langholtsskóla

Reykjavíkurborg
LangholtsskóliFull TimeEntry-levelPosted Today

Langholtsskóli óskar eftir að ráða skólaliða í 100% ótímabundið starf. Við leitum að lausnamiðuðum, sveigjanlegum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur ánægju af starfi með börnum og unglingum í jákvæðu umhverfi.

Langholtsskóli er heildstæður grunnskóli með um 650 nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, fjölbreytta kennsluhætti og skapandi viðfangsefni þar sem komið er til móts við sérhvern nemanda. Skólinn hefur tekið þátt í fjölda þróunarverkefna á undanförnum árum. Upplýsingatækni er í hávegum höfð. Sérdeild fyrir nemendur með einhverfu starfar í skólanum. Einkunnarorð Langholtsskóla eru virðing, vellíðan, og skapandi skólastarf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að sinna nemendum í leik og starfi

Aðstoð í mötuneyti

Að sjá um daglegar ræstingar

Að sinna tilfallandi verkefnum

Hæfniskröfur

Reynsla og áhugi á að vinna með börnum

Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum

Frumkvæði og jákvæðni

Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum eða íslenskukunnátta á stigi A1 og enskukunnátta á stigi A2.

Nánari upplýsingar veitir Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir, skólastjóri, í síma 4116600 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið sigurlaug.hrund.svavarsdottir@reykjavik.is.  

Ready to apply? You'll be taken to Reykjavíkurborg's application page.
Skólaliði í Langholtsskóla at Reykjavíkurborg