Back to Jobs
Reykjavíkurborg

Stuðningsfulltrúi í hlutastarf

Reykjavíkurborg
Íbúðakjarni HagaseliFull TimeMid-levelPosted Today

Við í Hagaseli leitum að fólki í ótrúlega skemmtilegt og fjölbreytt hlutastarf. Fullkomið starf fyrir fólk sem elskar að hafa gaman og vinna með frábæru fólki. Um vaktavinnu er að ræða þar sem unnið er bæði kvöld og helgar. Starfshlutfall fer eftir samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð starfsmanna:

  • Stuðningur og aðstoð við íbúa.
  • Stuðningur og aðstoð við heimilishald.
  • Stuðningur og aðstoð við samfélagsþátttöku, sækja þjónustu og njóta menningar og félagslífs.
  • Framfylgir einstaklingaáætlunum í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
  • Áhersla er lögð á einstaklingsbundinn stuðning þar sem þjónusta er aðlöguð að breytilegum þörfum og aðstæðum viðkomandi á hverjum tíma. Virða ber sjálfræði einstaklinga og hafa velferð þeirra að leiðarljósi.

Hæfnuskröfur:

  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Íslenskukunnátta B1 (samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).

Frekari upplýsingar um starfið

Upphafsdagur fer eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurbogar og Sameykis.

Nánari upplýsingar hjá Álfheiði Hafsteinsdóttur í gegnum tölvupóst, alfheidur.hafsteinsdottir@reykjavik.is

Ready to apply? You'll be taken to Reykjavíkurborg's application page.
Stuðningsfulltrúi í hlutastarf at Reykjavíkurborg