Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi til þess að bætast í hóp öflugra starfsmanna verslunarinnar. Lögð er áhersla á jákvætt hugarfar og metnað fyrir því að veita framúrskarandi þjónustu. Um er að ræða framtíðarstarf og 100% starfshlutfall.
Um er að ræða starf sölufulltrúa með góða þekkingu á pípu- og raflögnum meðal annars.
Helstu verkefni:
- Afgreiðsla, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
- Áfyllingar
- Pantanir
- Birgðaleiðréttingar
- Útstillingar, hreinlæti og skipulag
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Stundvísi
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Íslenskukunnátta, skilyrði
- Reynsla af sambærilegu starfi
Nánari upplýsingar um starfið gefur Sigríður Bjarnadóttir rekstrarstjóri, á sigridurb@husa.is
Húsasmiðjan er líflegur vinnustaður með góðan starfsanda og sterka liðsheild. Húsasmiðjan leggur áherslu á að nýta til hins ýtrasta hæfni, frumkvæði og þekkingu samhents hóps rúmlega 500 starfsmanna sem starfa hjá fyrirtækinu. Lögð er rík áhersla á símenntun og fræðslu og að starfsmenn eigi þess kost að eflast og þróast í starfi.
Gildin okkar eru: Gleði - Kraftur - Fagmennska
Við hvetjum öll til að sækja um óháð kyni.
