BorgarnesFull TimeEntry-levelPosted Today
Við leitum eftir öflugum liðsauka í timbursölu Húsasmiðjunnar í Borgarnesi. Um er að ræða framtíðarstarf og 100% starfshlutfall.
Helstu verkefni fela í sér ráðgjöf, sölu og þjónustu við viðskiptavini ásamt öðrum tilfallandi verslunarstörfum. Timbursala hefur verið einn veigamesti þáttur í starfssemi Húsasmiðjunnar í yfir 60 ár.
Helstu verkefni:
- Afgreiðsla, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
- Áfyllingar
- Pantanir
- Birgðaleiðréttingar
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
- Snyrtimennska
- Sterk öryggisvitund
- Almenn tölvukunnátta
- Lyftarapróf, J réttindi eru kostur
Við leggjum ríka áherslu á liðsheild og góð samskipti og í Húsasmiðjunni ríkir skemmtilegur og líflegur starfsandi.
Nánari upplýsingar um starfið gefur rekstrarstjóri verslunarinnar, Sigríður Guðbjörg á sigridurb@husa.is
Hvetjum öll til að sækja um óháð kyni.
Öllum umsóknum verður svarað þegar búið er að ráða í starfið.
Gildin okkar eru: Gleði - Kraftur - Fagmennska
