Back to Jobs
SauðárkrókurFull TimeEntry-levelPosted Today

Hús frítímans auglýsir nokkur laus störf í 20%-100% starfshlutfalli. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og unnið til maí loka eða eftir samkomulagi.

Starfsmaður skipuleggur dagskrá í samstarfi við aðra starfsmenn og ber jafnframt sameiginlega ábyrgð á því starfi sem fer fram í Húsi frítímans. Starfsmaður skal efla virkni, sjálfsábyrgð og sjálfstæði þeirra hópa sem sækja Hús frítímans. Honum ber að sinna þeim störfum sem honum kunnu að vera falin af næsta yfirmanni og falla innan eðlilegs starfssviðs hans, s.s. að frágangur húsnæðis sé viðunandi að vinnudegi loknum.

Hæfniskröfur:

Viðkomandi þarf að hafa mikinn áhuga á að starfa með börnum og unglingum, hafa ríka ábyrgðartilfinningu, vera tilbúinn til að tileinka sér nýjar hugmyndir, hafa metnað í starfi, vera jákvæður og sýna af sér sjálfstæði, skipulögð vinnubrögð og frumkvæði. Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 18 ára aldri. Reynsla og menntun sem nýtist í starfi er kostur. Hreint sakavottorð í samræmi við æskulýðslög nr. 70/2007.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag. Starfsheiti: frístundaleiðbeinandi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorvaldur Gröndal, frístundastjóri 455 6033/660 4639.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf)

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Hús frítímans er miðstöð tómstundastarfs allra íbúa sveitarfélagsins, óháð aldri. Í Húsi frítímans er starfsemi allan daginn fyrir mismunandi hópa. Auk starfsemi í þágu eldri borgara, ungmenna og grunnskólabarna er húsið opið fyrir hvers konar félags- og menningarstarfsemi íbúa héraðsins.

Ready to apply? You'll be taken to Sveitarfélagið Skagafjörður's application page.
Hús frítímans at Sveitarfélagið Skagafjörður