Back to Jobs
Akureyrarbær

Launadeild: Sérfræðingur

Akureyrarbær
LaunadeildFull TimePosted Today

Launadeild Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða sérfræðing. Um er að ræða 100% starf sem er tímabundið til 31.12.2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 01.10.2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Hlutverk launadeildar er launavinnsla og launagreiðslur til starfsmanna Akureyrarbæjar í samræmi við gildandi kjarasamninga, lög og reglur og samþykktir Akureyrarbæjar. Veitt er miðlæg þjónusta við stjórnendur og launþega, upplýsingagjöf og ráðgjöf til starfsmanna og stjórnenda, kennsla og þjálfun stjórnenda, eftirlit, túlkun og framkvæmd kjarasamninga.

Helstu verkefni eru:

  • Launavinnsla.
  • Upplýsingagjöf til stjórnenda og launþega varðandi kjaratengd mál.
  • Útreikningar á réttindum starfsmanna skv. kjarasamningum.
  • Eftirfylgni með framkvæmd kjarasamninga og verklagsreglna.
  • Teymis- og umbótavinna.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf (BA/BS) sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af launavinnslu og/eða bókhaldi æskileg.
  • Reynsla af skrifstofustörfum kostur.
  • Þekking á kjarasamningum sveitarfélaga kostur.
  • Þekking og reynsla af Vinnustund kostur.
  • Þekking og reynsla af Kjarna launa- og mannauðskerfi kostur.
  • Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfinu OneSystems eða sambærilegu kerfi kostur.
  • Hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum bæði munnlega og skriflega.
  • Mjög góð tölvukunnátta.
  • Geta og vilji til að tileinka sér nýjungar.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
  • Samstarfsvilji og samskiptafærni.
  • Færni til að vinna undir álagi og tímapressu.
  • Góð íslenskukunnátta bæði í ræðu og riti.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið, kaup og kjör veitir Þóra G. Þorsteinsdóttir forstöðumaður launamála thoratho@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026.

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.
Launadeild: Sérfræðingur at Akureyrarbær