Back to Jobs
Akureyrarbær

Íþróttamiðstöðin í Hrísey: Sundlaugarvörður

Akureyrarbær
Sundlaug AkureyrarFull TimeEntry-levelPosted Today

þróttamiðstöðin í Hrísey óskar eftir að ráða sundlaugarvörð í 65–85% stöðu. Um er að ræða ótímabundið starf sem unnið er á dag- og helgarvöktum.

Helstu verkefni eru:

  • Öryggisgæsla.
  • Þjónusta við gesti staðarins.
  • Gæsla og þjónusta í búningsklefum.
  • Vinna í þvottahúsi Íþróttamiðstöðvarinnar.
  • Þrif á húsnæði og útisvæði.
  • Umsjón með tjaldsvæði.
  • Umsjón með búnaði í kjallara sundlaugar og gæðum vatns.
  • Afgreiðsla.

Hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem fullorðna.
  • Góður samstarfsvilji.
  • Kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða sundkunnáttu og standist hæfnispróf sundstaða samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum.
  • Reglusemi.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Kostur er að umsækjandi hafi áður unnið við sundlaug.
  • Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Íþróttamiðstöðin í Hrísey er reyklaus vinnustaður.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar, netfang: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Gísla Rúnar Gylfason forstöðumaður í síma 461-4455, netfang gislirunar@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2026.

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.
Íþróttamiðstöðin í Hrísey: Sundlaugarvörður at Akureyrarbær