Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á góða alhliða þekkingu á flestum réttarsviðum lögfræðinnar og sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Áhersla er lögð á símenntun og miðlun þekkingar milli starfsfólks. Hjá embætti borgarlögmanns, sem er með aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur, starfa níu lögmenn auk verkefnastjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Lögfræðileg ráðgjöf, þ.m.t. álitsgerðir og umsagnir til borgarstjórnar, borgarráðs, innkaupa- og framkvæmdaráðs, borgarstjóra, sviða og stofnana Reykjavíkurborgar
- Fyrirsvar og hagsmunagæsla fyrir Reykjavíkurborg og stofnanir hennar fyrir dómstólum og eftirlits- og úrskurðaraðilum
- Undirbúningur dómsmála og málflutningur
- Meðferð stjórnsýslumála
- Meðferð innkaupamála
- Samningagerð, yfirlestur samninga og önnur skjalagerð
- Fyrirsvar vegna skaðabótakrafna sem beint er gegn Reykjavíkurborg
- Uppgjör slysa- og skaðabótakrafna á grundvelli kjarasamninga
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Embættispróf eða meistarapróf í lögfræði
- Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum
- Góð þekking á stjórnsýslurétti
- Reynsla af málflutningi æskileg
- Sveigjanleiki og hæfni til að afla sér nýrrar þekkingar og setja sig inn í ólíka málaflokka
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta á stigi C2 skv. samevrópska tungumálarammanum og góð færni í að setja mál fram í ræðu og riti
- Skipuleg og fagleg vinnubrögð
- Heilindi, jákvæðni og lipurð í samskiptum
Um er að ræða fullt starf og greiðast laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Stéttarfélags lögfræðinga. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2026. Umsókn skal skila rafrænt á vefsíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is. Með umsókn skal fylgja afrit af málflutningsréttindum, ítarleg starfsferilskrá, þar sem koma fram upplýsingar um menntun og fyrri störf, ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum þess að sótt er um starfið og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ebba Schram borgarlögmaður í gegnum netfangið ebba.schram@reykjavik.is.
