Back to Jobs
Reykjavíkurborg

Stuðningsfulltrúi óskast í Brúarskóla

Reykjavíkurborg
Brúarskóli - AlmenntPart TimeMid-levelPosted Today

Við leitum að hressum og áhugasömum aðila sem er tilbúinn til að sinna skemmtilegu og jafnframt krefjandi starfi.

Brúarskóli er sérskóli fyrir nemendur í 3. - 10. bekk sem hafa átt erfitt með að fóta sig í almennum skóla. Skólinn er tímabundið úrræði og starfar í Vesturhlíð og Grafarvogi. Í starfinu er lögð áhersla á félagsfærni, samskipti og jákvæða uppbyggingu hvers einstaklings.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stuðningur við nemendur í skólastarfi
  • Aðstoða nemendur eftir þörfum hvers og eins við athafnir daglegs lífs.
  • Auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum.
  • Fylgir eftir stefnu skólans og sinnir öðrum verkefnum sem viðkomandi er falið.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Reynsla í starfi með börnum æskileg
  • Góða færni í íslensku

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameyki. Starfshlutfall er 85%

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Björnsson í síma 411-7970 / 8699829 og tölvupósti olafur.bjornsson@reykjavik.is

Ready to apply? You'll be taken to Reykjavíkurborg's application page.
Stuðningsfulltrúi óskast í Brúarskóla at Reykjavíkurborg