Back to Jobs
Reykjavíkurborg

Virkniþjálfi í BORGUM, félags og menningamiðstöð.

Reykjavíkurborg
BorgirFull TimePosted Today

Vinna að skipulagningu og framkvæmd félagsstarfs í félagsmiðstöðinni Borgum, sem eru í stöðugri þróun, í góðu samráði við þátttakendur sem eru á öllum aldri. Virkniþjálfi óskast í 100% stöðu og mun veita stuðning við sjálfsprottið félagsstarf. Um framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning, undirbúningur og framkvæmd félagsstarfs í samráði við þátttakendur, notendaráð og samstarfsfólk.
  • Virkja hugmyndir sem upp koma með hugmyndafræði um virkni að leiðarljósi.
  • Lögð er áhersla á metnað og áhuga á að takast á við ný verkefni í afar spennandi vinnuumhverfi þar sem lífsgleði fær að njóta sín.
  • Stuðningur og skipulagning við félagsstarfið og samstarf við þjónustuþega.
  • Sér meðal annars um auglýsingar, samfélagsmiðla, utanumhald verkefna og samstarf til eflingar félagsauðs.
  • Önnur þau verkefni sem yfirmenn fela honum.

Hæfniskröfur

  • Menntun í Tómstunda og félagsmálafræði eða önnur sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Hæfni í samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Þekking og reynsla af félagsstarfi, þjónustu við fólk og verkefnastjórnun er æskileg.
  • Íslenskukunnátta B2 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Birna Róbertsdóttir 662-5058 og í tölvupósti birna.robertsdottir@reykjavik.is.

Ready to apply? You'll be taken to Reykjavíkurborg's application page.
Virkniþjálfi í BORGUM, félags og menningamiðstöð. at Reykjavíkurborg