Back to Jobs
Reykjavíkurborg

Stuðningsfulltrúi í Virknimiðstöð Reykjavíkur - starf sem skiptir máli

Reykjavíkurborg
Virknimiðstöð - SmiðjanFull TimeEntry-levelPosted Today

Vilt þú vinna starf sem skiptir máli? Virknimiðstöð Reykjavíkur leitar að stuðningsfulltrúa í fullt starf. Í starfinu tekur þú þátt í daglegu starfi með fötluðu fólki þar sem áhersla er lögð á virkni, valdeflingu, virðingu og sjálfstæði. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi, er nærgætinn, lausnamiðaður og hefur ánægju af því að styðja fólk til aukins sjálfstæðis, þátttöku og bættra lífsgæða.

Um starfsemina Virknimiðstöð Reykjavíkur samanstendur af Smiðjunni, Opus og Iðjubergi ásamt smíðastofu, tónlistarhúsi og listasmiðju. Starfsemin byggir á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsögn. Áhersla er á skapandi og valdeflandi umhverfi.

Um starfið

  • Hvetja og styðja einstaklinga í daglegri virkni og starfi.
  • Veita umönnun og skilja fjölbreytt tjáningaform.
  • Framfylgja einstaklingsáætlunum með jákvæðu viðmóti og nærgætni.
  • Vera leiðbeinandi og góð fyrirmynd í daglegu starfi.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af vinnu með fötluðu fólki eða í sambærilegu starfi er kostur.
  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sveigjanleiki í vinnubrögðum.
  • Hreint sakavottorð samkvæmt lögum og reglum Reykjavíkurborgar.
  • Ökuréttindi eru æskileg.
  • Íslenskukunnátta á C1-stigi samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Starfið er staðsett að Skeifunni 8, á annarri hæð.

Vinnutími: kl. 8:30–15:45, 36 stunda vinnuvika.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Skúlína Vigdísardóttir. Hægt er að senda fyrirspurn á netfangið skulina.vigdisardottir@reykjavik.is

Ready to apply? You'll be taken to Reykjavíkurborg's application page.
Stuðningsfulltrúi í Virknimiðstöð Reykjavíkur - starf sem skiptir máli at Reykjavíkurborg