Back to Jobs
Isavia ohf

Sérfræðingur flugvallarinnviða

Isavia ohf
KeflavíkurflugvöllurFull TimePosted Today

Við leitum að drífandi sérfræðingi til þátttöku í líflegu og fjölbreyttu starfsumhverfi á Keflavíkurflugvelli. Viðkomandi mun starfa í teymi Flugvallarinnviða innan deildar Eignastýringar, þar sem fyrir er öflugur hópur sérfræðinga með fagþekkingu hver á sínu ábyrgðarsviði.

Eignastýring ber ábyrgð á innviðum flugvallarins og eignir sem tilheyra eignahópi flugvallarinnviða eru m.a. flugbrautir, akbrautir, flughlöð og rafkerfi þeim tengdum, sem og ofanvatnskerfi, olíuskiljur og settjarnir.

Helstu verkefni:

  • Rekstur og viðhald ofangreindra innviða
  • Reglubundið eftirlit og greining á ástandi innviða og mat á viðhaldsþörf
  • Undirbúningur og framkvæmd viðhaldsverkefna
  • Innkaup og kostnaðareftirlit
  • Þátttaka í gerð rekstrar-, viðhalds- og fjárfestingaáætlana
  • Þátttaka í gerð öryggismata verkefna
  • Þátttaka og rýni í uppbyggingar- og framkvæmdaverkefnum
  • Samskipti við innri og ytri hagaðila, hönnuði, verktaka og birgja
  • Verkefnastjórn þegar við á

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. tækni- eða verkfræðimenntun
  • Reynsla af verkefnastjórnun og/eða stjórnun framkvæmda er kostur
  • Reynsla af hönnun, viðhaldi eða lagningu slitlaga er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af Civil3D/CAD er kostur
  • Góð skipulags- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og jákvætt viðhorf

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknafrestur er til og með 17.ágúst 2026

Frekari upplýsingar um starfið veitir Finnur Þórðarson deildarstjóri, í gegnum netfang finnur.thordarson@isavia.is.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Ready to apply? You'll be taken to Isavia ohf's application page.
Sérfræðingur flugvallarinnviða at Isavia ohf