Back to Jobs
Isavia ohf

Eignastjóri rafmagnskerfa á flugstöðvarsvæði

Isavia ohf
KeflavíkurflugvöllurFull TimePosted Today

Við leitum að drífandi og jákvæðum stjórnanda til að leiða rekstur og viðhald rafmagnskerfa flugstöðvarsvæðis í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi á Keflavíkurflugvelli. Eignastjóri starfar innan deildar Eignastýringar þar sem starfar öflugur hópur stjórnenda og sérfræðinga hver með fagþekkingu á sínu ábyrgðarsviði. 

Starfið felur í sér mannaforráð.

Eignir sem tilheyra eignahópi rafmagnskerfa flugstöðvar eru m.a. rafdreifikerfi lágspennu, smáspennulagnir, lýsing, ljósastýringar, neyðarlýsing, varaaflsstöðvar, UPS varaafl og rafhleðslustöðvar.

Helstu verkefni:

  • Stjórnun teymis og verkefnastýring
  • Gerð fjárhagsáætlana og eftirfylgni
  • Áreiðanleika- og líftímagreiningar
  • Innkaup vegna verkefna og kostnaðareftirlit
  • Þátttaka og rýni í uppbyggingar- og framkvæmdaverkefnum
  • Samskipti við ýmsa hagaðila, hönnuði, verktaka og birgja
  • Ábyrgð á gerð og uppfærsla verklagsreglna og viðbragðsáætlana

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun í rafiðnfræði, rafmagnstæknifræði, rafmagnsverkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Sveinspróf í rafvirkjun er skilyrði
  • Meistararéttindi í rafvirkjun er kostur
  • Reynsla af rekstri eða hönnun rafmagnskerfa og/eða rafbúnaðar er skilyrði
  • Reynsla af stjórnun er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Gild ökuréttindi eru skilyrði

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.  

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Finnur Þórðarson deildarstjóri, í gegnum netfang finnur.thordarson@isavia.is.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið. 

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Ready to apply? You'll be taken to Isavia ohf's application page.
Eignastjóri rafmagnskerfa á flugstöðvarsvæði at Isavia ohf