Back to Jobs
Akureyrarbær

Giljaskóli: Grunnskólakennari á miðstigi

Akureyrarbær
GiljaskóliTemporaryEntry-levelPosted Today

Laus er til umsóknar tímabundin staða grunnskólakennara á miðstigi í Giljaskóla skólaárið 2026-2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Um er að ræða allt að 100% starfshlutfall og verður ráðið í starfið frá 15. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Leitað er að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Giljaskóli starfar eftir samskipta- og uppeldisstefnu sem nefnist Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging sjálfsaga. Skólinn er réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er sérdeild sem sinnir kennslu og þjálfun barna með ýmiskonar fatlanir. Giljaskóli er framsækinn skóli, hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta.

Einkunnarorð Giljaskóla eru „Ábyrgð – Virðing – Vinsemd“.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.giljaskoli.is

Starfssvið:

Kennari er hluti af kennarateymi, sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við kennara teymisins og aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Framhaldsmenntun er æskileg.
  • Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg.
  • Þekking og/eða vilji til að starfa eftir hugmyndafræði Uppbyggingastefnunnar.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Frumkvæði og samstarfsvilji.
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
  • Áhugi á þróunarstarfi.
  • Góð íslenskuklunnátta í ræðu og riti.
  • Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, kennslureynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi kennara. Mikilvægt er að einnig komi fram hugmyndir umsækjenda og sýn á kennarastarfið og hvernig hann sér starf sitt sem kennara þróast.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Allar nánari upplýsingar veita, Aðalheiður Skúladóttir staðgengill skólastjóra í síma 462-4820 eða allas@akmennt.is og Elías Gunnar Þorbjörnsson skólastjóri í síma 462-4820 eða elias@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 11. ágúst 2026.

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.
Giljaskóli: Grunnskólakennari á miðstigi at Akureyrarbær