Frístundamiðstöðin Miðberg heldur utan um starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Breiðholti. Frístundamiðstöðin stendur fyrir fjölbreyttu starfi fyrir börn og ungmenni frá aldrinum 6 – 16 ára. Markmiðið er að veita börnum og ungmennum innihaldsríka þjónustu í frítíma þeirra. Sex frístundaheimili og fjórar félagsmiðstöðavar starfa undir frístundamiðstöðinni.
Félagsmiðstöðvarnar Bakkinn, Hólmasel og Hundrað&ellefu eru starfræktar fyrir börn og unglinga 10 – 16 ára sem búsett eru í Breiðholti. Opið er í félagsmiðstöðvunum mánudags-, þriðjudags-, miðvikudags- og föstudagskvöld.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 24. ágúst. Í boði eru hlutastörf 20 – 27% 1-2 kvöld í viku.
Vinnutíminn er breytilegur en algengast er 17/19-22:00 á mánudags-miðvikudagskvöldum og 17:00-23:00 á föstudögum. Frágangur og ígrundun er í lok hverrar vaktar. Starfsmannafundir eru annan hvern mánudag frá 17:15-19:00 og eru inni í starfshlutfalli.
Um er að ræða tímabundna ráðningu frá ágúst 2026 - júní 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning og framkvæmd á faglegu starfi samvinnu við þátttakendur og aðra starfsmenn.
- Veita börnum með einstakar þarfir leiðsögn og stuðning.
- Samskipti og samstarf við börn, unglinga og samstarfsfólk.
- Framfylgja stefnu skóla – og frístundasviðs í málefnum frítímans.
Hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum og ungmennum.
- Færni í samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Fjölbreytt áhugsvið sem nýtist í félagsmiðstöðvastarfi.
- Góð íslenskukunnátta ((B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum).
Vinsamlegast sendið inn starfsferilskrá með umsókn. Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall 20 – 27 %
Ráðningarform Tímabundin ráðning
Nafn sviðs Skóla- og frístundasvið
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristrún Lilja Daðadóttir, deildarstjóri unglingastarfs í Miðbergi, netfang: kristrun.lilja.dadadottir@reykjavik.is
