Varmahlíðarskóli óskar eftir að ráða starfsmann í mötuneyti skólans. Um 100% starfshlutfall er að ræða frá og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Í Varmahlíðarskóla eru um 110 nemendur í 1. - 10. bekk. Flestir nemendur skólans koma úr Varmahlíð og dreifbýli í framanverðum Skagafirði. Einkunnarorð skólans eru: Virðing, Metnaður og Vellíðan. Varmahlíðarskóli leggur áherslu á faglegt og fjölbreytt starf. Í skólanum er samkennsla og lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og samvinnu milli nemenda. Skólinn býr yfir miklum mannauði sem stendur saman og leysir í sameiningu þau verkefni sem upp koma. Varmahlíðarskóli starfar sem heilsueflandi grunnskóli og leggur áherslu á velferð, hreyfingu og heilbrigða lífshætti sem m.a. hefur sést í góðum árangri í Skólahreysti síðustu ár. Íþróttahús og sundlaug eru staðsett við hlið skólans. Árlega eru settar upp leiksýningar í Miðgarði sem hafa dregið að marga áhorfendur og vakið gleði í samfélaginu. Leikskólabygging er samtengd grunnskólanum og mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskóla. Tónlistarskólinn er með aðstöðu í skólanum og er rík tónlistarhefð í skólanum og samfélaginu. Fallegt umhverfi skólans býður upp á mikla útivist og möguleika til útikennslu.
Lýsing á starfi:
Í starfinu felst meðal annars framreiðsla máltíða fyrir leik- og grunnskólanemendur ásamt öðrum verkefnum í eldhúsi.
Hæfniskröfur:
Reynsla af störfum í mötuneyti/eldhúsi er æskilegt. Umsækjendur þurfa að búa yfir færni í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði, sjálfstæði og hafa faglegan metnað fyrir starfi sínu. Matráður þarf að geta unnið í nánu samstarfi við skólastjórnendur og annað starfsfólk skólans. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og áreiðanleika í starfi. Hreint sakavottorð skv. lögum um grunnskóla.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Nína Ýr Nielsen, ninayr@skagafjordur.is, s. 897 8285.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins: www.skagafjordur.is. Ferilskrá skal fylgja umsókn. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
