Frístundamiðstöðin Miðberg heldur utan um starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Breiðholti. Frístundamiðstöðin stendur fyrir fjölbreyttu starfi fyrir börn og ungmenni frá aldrinum 6 – 16 ára. Markmiðið er að veita börnum og ungmennum innihaldsríka þjónustu í frítíma þeirra. Sex frístundaheimili og fjórar félagsmiðstöðavar starfa undir frístundamiðstöðinni.
Félagsmiðstöðin Hellirinn er starfrækt fyrir fötluð börn og unglinga 10 – 16 ára sem búsett eru í Breiðholti. Hellirinn er opin alla virka daga frá því að skóla lýkur til kl. 17.00. Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska fatlaðra barna og unglinga með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls. Starfið er einstaklingsmiðað og taka börnin og unglingarnir þátt í að móta dagskránna.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í kringum 21. ágúst. Í boði eru hlutastörf 20 – 45% frá 13:35-16:30/17:00 á daginn. Starfsmannafundir eru annan hvern mánudag frá 17:00-19:00 og eru inni í starfshlutfalli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning og framkvæmd á faglegu starfi samvinnu við þátttakendur og aðra starfsmenn.
- Veita börnum með einstakar þarfir leiðsögn og stuðning.
- Samskipti og samstarf við börn, unglinga og samstarfsfólk.
- Framfylgja stefnu skóla – og frístundasviðs í málefnum frítímans.
Hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum og ungmennum í sértæku félagsmiðstöðvarstarfi.
- Færni í samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Fjölbreytt áhugsvið sem nýtist í félagsmiðstöðvastarfi.
- Góð íslenskukunnátta ((B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum).
Vinsamlegast sendið inn starfsferilskrá með umsókn. Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall 20 – 45 %
Ráðningarform Tímabundin ráðning
Nafn sviðs Skóla- og frístundasvið
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristrún Lilja Daðadóttir, deildarstjóri unglingastarfs í Miðbergi, netfang: kristrun.lilja.dadadottir@reykjavik.is
