Heimaþjónusta Reykjavíkur Norðvestur leitar að jákvæðum og skipulögðum aðila í starf flokkstjóra heimastuðnings. Um er að ræða ótímabundið starf í dagvinnu.
Unnið er eftir samþættri þjónustu heimastuðnings, heimahjúkrunar og endurhæfingarteyma með það að markmiði að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum. Heimastuðningur veitir þjónustu eftir stuðningsáætlun sem gerð hefur verið við notendur á heimilum þeirra, s.s. aðstoð við heimilishald, þrif, félagslegan stuðning, persónulega umhirðu o.fl. Veittur er sérstakur stuðningur við ákveðna einstaklinga til að rjúfa félagslega einangrun og við þátttöku í daglegu lífi.
Flokkstjóri sér um stýringu daglegra starfa starfsmanna í heimastuðning ásamt að þjónusta fjölbreyttan hóp íbúa í samráði við teymisstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og eftirlit með framkvæmd heimastuðnings í samráði við teymisstjóra
- Dagleg skipulagning á verkefnum starfsmanna
- Samskipti við skjólstæðinga og starfsmenn
- Þjálfun starfsmanna og fræðsla
- Ýmis tölvuvinna
- Leysir af vegna forfalla starfsmanna eftir þörfum
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni
Menntun-og hæfniskilyrði
- Félagsliðamenntun eða sambærileg menntun
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
- Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum
- Reynsla á sviði heimaþjónustu
- Frumkvæði og skipulaghæfileikar
- Hæfni í samskiptum
- Stundvísi og sjálfstæði í starfi
- Góð tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
- Ökuréttindi
- Þekking á dala care er kostur
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
- Menningarkort
- Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
- 36 stunda vinnuvika
- Fjölskylduvænt starfsumhverfi
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Axel, teymisstjóri í heimastuðning í gegnum netfangið Gudmundur.Axel.Hilmarsson@reykjavik.is eða í síma 411-1590.
