Laugarnesskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.- 6. bekk. Einkunnarorð skólans eru lífsgleði, nám, samvinna, kærleikur og ósk. Kennsluhættir í Laugarnesskóla einkennast af fjölbreytni þar sem skólinn reynir að koma til móts við ólíkar þarfir og áhuga nemenda. Skólaumhverfi skólans á að vera hlýlegt og aðlaðandi fyrir alla þá sem tengjast skólanum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna eftir áætlun sem umsjónarkennari hefur útbúið í samráði við deildarstjóra stoðþjónustu, þroskaþjálfa eða aðra ráðgjafa
- Auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum. Aðstoða þá við að ná settum markmiðum samkvæmt aðal - og/eða einstaklingsnámskrá og aðlaga verkefni að getu nemenda undir leiðsögn kennara
- Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð. Vinna gegn neikvæðri hegðun t.d. með jákvæðri atferlismótun og með því að fylgja nemanda tímabundið afsíðis
- Fylgja nemendum á ferðum um skólann, í sund, í frímínútur og vettvangsferðir og aðstoða eftir þörfum
- Sitja fag - og foreldrafundi eftir því sem við á
- Geta eftir aðstæðum einnig sinnt öðrum nemendum í bekknum meðal annars til að kennari geti aðstoðað nemanda sem þarf séraðstoð og til að draga úr sérstöðu nemanda með sérþarfir
- Önnur þau störf sem deildarstjóri felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
Áhugi á að starfa með börnum
Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Stundvísi og samviskusemi
Reynsla í starfi með börnum æskileg
Góð færni í íslensku
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Gunnlaugsson skólastjóri í gegnum netfangið bjorn.gunnlaugsson@reykjavik.is
Starfshlutfall 60% eða eftir samkomulagi.
Tímabundin ráðning.
