Back to Jobs
Reykjavíkurborg

Stuðningsfulltrúi í frístundaheimilið Guluhlíð og félagsmiðstöðvarnar Heklu og Öskju

Reykjavíkurborg
Frístundastarf KlettaskólaPart TimeMid-levelPosted Today

Frístundaheimilið Gulahlíð og félagsmiðstöðvarnar Hekla og Askja óska eftir að ráða stuðningsfulltrúa í starf veturinn 2026 - 2027. Þessir staðir eru starfræktir undir Frístundamiðstöðinni Kringlumýri sem starfrækir sex aðrar félagsmiðstöðvar og átta önnur frístundaheimili í Laugardal- Háaleiti- og Bústaðahverfi.

Markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna- og unglinga í gegnum leik og starf. Frístundaheimilið Gulahlíð og félagsmiðstöðvarnar Hekla og Askja standa fyrir frítímastarfi, að skóla loknum og þjónustar unglinga úr Klettaskóla/Korpuskóla. Klettaskóli/Korpuskóli er sérskóli fyrir börn og unglinga með fötlun.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Í boði er 30-50% hlutastarf eftir hádegi á virkum dögum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-16 ára börn og ungmenni.
  • Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.

Hæfniskröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall 30-50%

Ráðningarform Tímabundin ráðning

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Þóra Böðvarsdóttir

elin.thora.bodvarsdottir@reykjavik.is 

Frístundaheimilið Gulahlíð - Kringlumýri

Vesturhlíð 3

105 Reykjavík

Félagsmiðstöðin Hekla - Kringlumýri

Suðurhlíð 9

105 Reykjavík

Félagsmiðstöðin Askja - Kringlumýri 

Bakkastöðum 2

112 Reykjavík

Ready to apply? You'll be taken to Reykjavíkurborg's application page.
Stuðningsfulltrúi í frístundaheimilið Guluhlíð og félagsmiðstöðvarnar Heklu og Öskju at Reykjavíkurborg