Back to Jobs
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Austurbyggð 17 - 600 AkureyriFull TimeEntry-levelPosted Today

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða hjúkrunarfræðing á Lögmannshlíð. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum en vill um leið vera hluti af sterku teymi og gjarnan vinna að nýjum hugmyndum og framþróun.

Um vaktavinnu er að ræða og starfshlutfall er 70%-90% eða eftir frekara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf í september.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Almenn hjúkrunarstörf

- Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við Eden hugmyndafræðina, sett markmið og gæðastefnu

- Frumkvæði að hagræðingu, faglegri þróun og skipulagningu á þjónustu við íbúa

- Þátttaka í þróunarverkefnum

- Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar

Menntunar- og hæfniskröfur

- Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur

- Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum

- Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg

- Þekking á Eden hugmyndafræðinni æskileg

- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji

- Góð almenn tölvukunnátta

Um Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili veita almenna og sérhæfða dag- og sólarhringsþjónustu fyrir aldraða og aðra sem búa við skerta færni vegna langvinnra eða flókinna veikinda. Um er að ræða fjölbreytta og áhugaverða starfsemi sem er í stöðugri þróun. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, hlýjan heimilisbrag og lífsgæði íbúa sem og annarra notenda þjónustunnar.

Upplýsingar um Heilsuvernd Hjúkrunarheimili má finna á heimasíðunni www.hlid.is

Umsóknarfrestur um starfið er til og með 04. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir:

Jóhanna Berglind Bjarnadóttir, forstöðumaður á Lögmannshlíð, johannabb@hlid.is.

Einungis er tekið á móti umsóknum á ráðningarsíðu Heilsuverndar Hjúkrunarheimilis

Ready to apply? You'll be taken to Heilsuvernd Hjúkrunarheimili's application page.
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa at Heilsuvernd Hjúkrunarheimili