Back to Jobs
Hrafnista

Aðstoðarmaður á endurhæfingardeild - Nesvellir

Hrafnista
Hrafnista NesvellirPart TimeEntry-levelPosted Today

Hrafnista óskar eftir að ráða skipulagða og sjálfstæða einstaklinga í stöður aðstoðarfólks á endurhæfingardeild á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Starfshlutfall er umsemjanlegt en þó helst ekki lægra en 70%. Viðkomandi kemur til með að starfa undir leiðsögn sjúkra- og iðjuþjálfa. Vinnan er fjölbreytt og er þannig að styrkleikar og áhugasvið fólks geta haft mikil áhrif á starfið og verkefnin.  

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoða iðju- og sjúkraþjálfara og íþróttafræðing
  • Aðstoða við endurhæfingu íbúa
  • Framfylgja þjálfunaráætlun íbúa
  • Leiðbeina, hvetja og aðstoða íbúa við handverk og félagsstarf
  • Teymisvinna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Jákvæðni og þjónustulund
  • Íslenskukunnátta skilyrði

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar -

Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Nánari upplýsingar veita Þuríður Elísdóttir (thuridur.elisdottir@hrafnista.is) og Elín Ingólfsdóttir (elin.ingolfsdottir@hrafnista.is).

Ready to apply? You'll be taken to Hrafnista's application page.
Aðstoðarmaður á endurhæfingardeild - Nesvellir at Hrafnista