Skagafjörður óskar eftir að ráða félagsráðgjafa eða sérfræðing með skylda menntun til starfa í barnavernd. Starfið er laust frá hausti 2026. Um 70% framtíðarstarf er að ræða. Unnið er í dagvinnu og viðkomandi tekur reglulega bakvaktir í barnavernd.
Helstu verkefni eru á sviði barnaverndar og félagsþjónustu, en lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf, heildstæða og samþætta þjónustu. Málstjórn í samþættum málum er hluti af starfinu og stjórnun og/eða þátttaka í stuðningsteymum í þjónustu í þágu farsældar barna. Ráðgjafi starfar náið með öðrum stofnunum sveitarfélagsins og sérfræðingum fjölskyldusviðs.
Menntunarkröfur:
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða önnur tengd háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
Hæfniskröfur:
- Almenn ökuréttindi eru skilyrði.
- Farsæl reynsla af starfi við barnavernd.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af ráðgjöf við einstaklinga og hópa sem eiga í félagslegum eða persónulegum vanda, ásamt því að hafa þekkingu á félagslegri þjónustu.
- Leitað er að einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni og ríka ábyrgðartilfinningu.
- Umsækjandi skal vera tilbúinn til að tileinka sér nýjar hugmyndir, hafa metnað í starfi, vera jákvæður og sýna af sér sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt frumkvæði.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Hreint sakavottorð.
Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Petra Ragnarsdóttir, leiðtogi farsældar og ráðgjafar, í síma 455 6000 eða margret@skagafjordur.is.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Prófskírteini/leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur af hverju sótt er um starfið og hvernig viðkomandi uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
