Back to Jobs
Akureyrarbær

Glerárskóli: Frístundafulltrúi í grunnskóla

Akureyrarbær
GlerárskóliFull TimeEntry-levelPosted 8d ago

Við Glerárskóla er laus til umsóknar 70 - 100% staða frístundafulltrúa.

Starfið er til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu og er ráðið í stöðuna frá ágúst 2026.

Vinnutíminn er alltaf til kl 16:15 hvern virkan dag.

Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla andlegt og líkamlegt heilbrigði.

Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.

Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.

Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við annað starfsfólk, stjórnendur skólans og forráðamenn.

Helstu verkefni:

● Frístundafulltrúi ber faglega ábyrgð á starfsemi frístundar og hefur umsjón með starfinu sem unnið er að skólatíma loknum

● Starfið felur í sér umsjón með nemanda/nemendum

● Frístundafulltrúi þarf að sjá um skráningar í tölvukerfi og vera í samvinnu við kennara yngstu nemenda skólans

● Frístundafulltrúi ber ábyrgð á því að koma upplýsingum um starfsemi frístundar til forráðamanna og vera í samskiptum við þá

● Frístundafulltrúi starfar undir stjórn deildarstjóra forvarna- og frístundamála skólans og skólastjóra

Menntunar- og hæfniskröfur:

● Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi

● Reynsla og ánægja af starfi með börnum er æskileg

● Þekking á frístundastarfi er kostur

● Frumkvæði og samstarfsvilji

● Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum

● Góðir skipulagshæfileikar

● Hæfni í mannlegum samskiptum

● Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði

● Reglusemi og samviskusemi

● Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Skúladóttir skólastjóri eyrun@akmennt.is og í síma 461-2666.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða í þjónustuanddyri Ráðhússins.

Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst 2026.

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.