Sundlaug Akureyrar og Íþróttamiðstöð Glerárskóla óska eftir að ráða starfsfólk í hlutastörf og fullt starf. Um er að ræða 20 – 100% starfshlutfall. Unnið er á báðum stöðum á dag-, kvöld- og helgarvöktum.
Annars vegar er um ótímabundin störf að ræða og hins vegar tímabundin afleysingarstörf.
Helstu verkefni eru:
- Öryggisgæsla.
- Þjónusta við gesti staðarins.
- Gæsla og þjónusta í búningsklefum.
- Þrif á húsnæði og útisvæði.
- Vinna í þvottahúsi sundlaugarinnar.
- Afgreiðsla.
- Vinna við fjölskyldugarð.
- Veita upplýsingar til ferðamanna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem fullorðna.
- Góður samstarfsvilji.
- Kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða sundkunnáttu og standist hæfnispróf sundstaða samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum.
- Hreint sakavottorð samkvæmt 10. gr. Æskulýðslaga.
- Reglusemi.
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Kostur er að umsækjandi hafi áður unnið við sundlaug.
- Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
- Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Sundlaug Akureyrar er reyklaus vinnustaður.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Pálína Dagný Guðnadóttir í síma 461-4455 eða í tölvupósti: palinadg@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2026.
