Back to Jobs
Hrafnista

Sjúkraliðar til Hrafnistu

Hrafnista
Hrafnista LaugarásFull TimeEntry-levelPosted 8d ago

Hrafnistuheimilin á höfuðborgarsvæðinu vilja fjölga sjúkraliðum og óska því eftir öflugum liðsauka sjúkraliða og/eða sjúkraliða með diplóma. Verkefnin og hlutverkin eru fjölbreytt og fara eftir þeirri menntun og reynslu sem fólk býr yfir. Ef þú býrð yfir faglegum metnaði, jákvæðni og ert með afburða samskiptahæfni hvetjum við þig til að sækja um. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að sinna líkamlegum, andlegum og félagslegum þörfum íbúa
  • Fjölbreytt teymisvinna
  • Getur falið í sér vaktstjórn og verkstjórn

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sjúkraliða 
  • Reynsla af störfum með eldra fólki kostur
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót
  • Sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi

Fríðindi í starfi

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námstyrkja
  • Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar -

Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Allar nánari upplýsingar veitir mannaudur@hrafnista.is.

Ready to apply? You'll be taken to Hrafnista's application page.