Félagsþjónusta velferðarsviðs Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða þroskaþjálfa í starf ráðgjafa í sérhæfða félagsþjónustu (málaflokk fatlaðra). Um er að ræða 100% tímabundna stöðu frá 1. október 2026 til eins árs með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Á velferðarsviði Akureyrarbæjar er rekin fjölbreytt velferðarþjónusta. Hlutverk sviðsins er að bjóða upp á ráðgjöf og beita úrræðum auk þess sem sviðið rekur þjónustukjarna og vinnustaði fyrir fatlað fólk.
Á Velferðarsviði er starfað eftir hugmyndafræði valdeflingar og þjónandi leiðsagnar.
Helstu verkefni eru:
- Ráðgjöf til einstaklinga sem þurfa sértæka félagsþjónustu vegna fötlunar.
- Sértæk ráðgjöf og stuðningur til foreldra og annarra aðstandenda fatlaðra.
- Er tengiliður við barna- og skólaþjónustu, vinnur með ráðgjöfum samþættingar samkvæmt verklagi og stuðlar að samfellu í þjónustu við fatlað fólk þegar fullorðinsárin taka við.
- Er tengiliður við framhaldsskóla og aðrar menntastofnanir og stuðlar að virku samstarfi um þjónustu og stuðning við fatlað fólk.
- Er málastjóri í málum þar sem þörf er á samhæfðri þjónustu vegna fötlunar. Annast þá samþættingu við fleiri svið og deildir Akureyrarbæjar sem og aðrar þjónustustofnanir fyrir fatlaða.
- Veitir sérhæfða ráðgjöf varðandi náin samskipti.
- Situr í teymi ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks.
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
- Starfsréttindi sem þroskaþjálfi á Íslandi er skilyrði.
- Viðbótarmenntun á sviði ráðgjafar er æskileg.
- Reynsla af vinnu með fötluðu fólki er nauðsynleg.
- Þekking og reynsla af starfi í félagsþjónustu er kostur.
- Reynsla af vinnu í skjalakerfinu ONE er kostur.
- Gerð er krafa um frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleika.
- Góð samskiptahæfni er nauðsynleg.
- Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
- Góð enskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsókninni skal fylgja staðfesting á starfsréttindum og greinargóðar upplýsingar um störf umsækjanda, menntun og starfsreynslu ásamt greinargóðum upplýsingum um þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldóra K. Hauksdóttir, forstöðumaður félagsþjónustu halldorah@akureyri.is eða í síma 460-1000.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí 2026
