Ný verslun í Höfn í Hornafirði (austurland) óskar eftir duglegum einstaklingum í ýmis störf í versluninni. Um er að ræða fullt starfshlutfall eða hlutastörf.
Hér er ný verslun að opna og vantar því starfsfólk í öll hlutverk, starf á kassa, áfyllingar, ákveðnar deildir, baksvæði, vaktstjóra - svo fátt eitt sé nefnt.
Starfslýsing fyrir almennt starf:
- Afgreiðsla
- Áfyllingar
- Frágangur
- Ábyrgð á afgreiðslukassa
- Önnur störf sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Ábyrgur einstaklingur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góðir samskiptahæfileikar
Fríðindi :
- Styrkur til heilsueflingar
- Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
- Aðgangur að Velferðarþjónustu Krónunnar
Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2026
*Athugið að ráðningar hefjast fyrr þannig að við hvetjum áhugasama til þess að sækja tímanlega um.
Við erum gríðarlega spennt að byggja upp nýjan starfshóp Krónunnar á Höfn. Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, hjálpsemi og liðsanda þar sem við berum öll ábyrgð á ástandi og velgengni verslunarinnar.
Krónan er með yfir 1200 starfsmenn og erum við því með alla mannflóruna á fjölbreyttum aldri og í fjölbreyttum störfum og starfshlutfalli.
