Back to Jobs
Akureyrarbær

Brekkuskóli: Félagsmiðstöðvarfulltrúi

Akureyrarbær
BrekkuskóliFull TimePosted 11d ago

Við Brekkuskóla er laus til umsóknar staða félagsmiðstöðvarfulltrúa. Um er að ræða 100% ótímabundið starf. Vinnutími er breytilegur, dag-, kvöld- eða helgarvinna. Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Brekkuskóli, í samstarfi við heimilin, vinnur að því að búa nemendur undir líf og starf, að hjálpa þeim að finna og nýta hæfileika sína og stuðla að andlegu og líkamlegu heilbrigði þeirra.

Í Brekkuskóla er mikil áhersla lögð á gott samstarf við foreldra. Brekkuskóli er uppbyggingarskóli og vinnur eftir agastjórnunarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.

Einkunnarorð skólans eru menntun - gleði - umhyggja - framfarir

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.brekkuskoli.is

Félagsmiðstöðvarfulltrúi er starfsmaður grunnskóla og starfar innan málaflokks forvarna- og frístunda. Markmið innan málaflokksins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem virkni og forvarnir eru höfð að leiðarljósi. Viðfangsefni eru forvarnaverkefni og virkniúrræði sem stuðla að velferð nemenda á mið- og unglingastigi. Í því felst m.a. að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni og stuðning sem höfðar til ólíkra hópa.

Forvarnarteymi skóla skipuleggur og útfærir forvarnarfræðslu út frá stöðu forvarnarmála og þörfum hverju sinni. Félagsmiðstöðvarfulltrúi situr í forvarnarteymi og kemur forvarnarfræðslu til framkvæmdar.

Helstu verkefni eru:

  • Skipulagning, undirbúningur og framkvæmd félagsmiðstöðva- og klúbbastarfs á mið- og unglingastigi frá byrjun ágúst og út júnímánuð í samráði við deildarstjóra, samstarfsfólk og þátttakendur í starfinu.
  • Tryggja öryggi og vellíðan barna og unglinga í félagsmiðstöðvastarfi og nýta úrræði innan starfsins og samstarf til þess að fyrirbyggja og bregðast við óæskilegri hegðun.
  • Vinna að ýmsum samstarfsverkefnum á milli félagsmiðstöðva grunnskóla og annarra sem koma að málefnum barna og ungmenna í samfélaginu, til að mynda almennt félagsmiðstöðvarstarf, dansleikir á vegum skóla, hinsegin félagsmiðstöð, Samfés, hæfileikakeppni o.fl.
  • Öflun, utanumhald og miðlun upplýsinga og tölulegra gagna er varða starfsemi félagsmiðstöðva.
  • Heldur utan um nemendaráð skólans eftir því sem við á.
  • Heldur utan um valgrein innan skólans sem tekur mið af starfssviði.
  • Skipuleggur, undirbýr og framkvæmir forvarnaverkefni og fræðslu.
  • Starfar í forvarnarteymi skólans.
  • Ber kennsl á helstu áhættuþætti í umhverfi barna og unglinga og bregst við þeim.
  • Vinnur með grunnskólanemendum í 5. - 10. bekk að félagsfærni, jákvæðum samskiptum og sjálfstyrkingu í samstarfi við deildarstjóra og umsjónarkennara.
  • Styður við einstaka viðburði hjá nemendum í 8. - 10. bekk í samráði við nemendur.
  • Starfsmaður tekur þátt í stefnumótunarvinnu samkvæmt nánari ákvörðun yfirmanna, deildarstjóra og skólastjóra.
  • Vera í góðu samstarfi við forsjáraðila.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í tómstunda- og félagsmálafræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi (BA/BS/B.Ed).
  • Þekking á starfsemi félagsmiðstöðva.
  • ​Nýleg og farsæl reynsla af vinnu með ungu fólki.
  • ​Nýleg og farsæl reynsla af starfi við forvarnir og fræðslu.
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
  • Framtakssemi og frumkvæði.
  • Samstarfsvilji og samskiptafærni.
  • Færni í miðlun og framsetningu upplýsinga.
  • ​Reynsla af verkefna- og viðburðastjórnun er æskileg.
  • ​Mjög góð tölvukunnátta.
  • ​Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð enskukunnátta.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um störf umsækjanda, menntun og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi félagsmiðstöðvafulltrúa.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Visku.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri, netfang johannam@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí 2026

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.