Back to Jobs
Akureyrarbær

Giljaskóli: Þroskaþjálfi við sérdeild

Akureyrarbær
GiljaskóliFull TimeEntry-levelPosted 11d ago

Í Giljaskóla er laus til umsóknar 100% staða þroskaþjálfa til að sinna aðstoð við nemendur í sérdeild. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst 2026 eða samkvæmt samkomulagi. Um ótímabundna ráðningu er að ræða.

Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Giljaskóli starfar eftir samskipta- og uppeldisstefnu sem nefnist Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging sjálfsaga. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er sérdeild sem sinnir kennslu og þjálfun barna með ýmiskonar fatlanir.

Giljaskóli er framsækinn skóli, hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta.

Í Giljaskóla sýnum við ábyrgð, virðingu og vinsemd.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.giljaskoli.is

Starfssvið:

  • Viðkomandi starfsmaður er hluti af teymi sem sinnir skipulagi og þjálfun nemenda í sérdeild.
  • Viðkomandi starfsmaður vinnur að einstaklingsnámskrám / einstaklingsáætlun fyrir þá nemendur sem þess þurfa í samvinnu við aðra sem að nemandanum koma.
  • Hugar að velferðar- og hjálpartækjum og aðstæðum fyrir nemendur.
  • Er í samstarfi við samstarfsfólk, forráðamenn, tengslastofnanir og aðra sem við á hverju sinni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf og starfsréttindi sem þroskaþjálfi.
  • Áhugi á skólastarfi og vinnu með börnum.
  • Reynsla af vinnu með börnum.
  • Frumkvæði og samstarfsvilji.
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Geta og vilji til að starfa í teymi með kennurum.
  • Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
  • Reglusemi og samviskusemi.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti er skilyrði.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, reynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa í stoðþjónustu í sérdeild Giljaskóla.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar í netfanginu launadeild@akureyri.is

Allar nánari upplýsingar veitir Elías Gunnar Þorbjörnsson skólastjóri í síma 462-4820, netfang elias@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí 2026.

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.