Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu og gefandi framtíðarstarfi? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni? Þá gætum við verið að leita að þér.
Hrafnista Hraunvangi leitar að öflugu starfsfólki í tvö spennandi störf. Um er að ræða störf í umönnun og býtibúri.
1. Umönnunarstörf - fullt starf og hlutastarf
Helstu verkefni:
- Að aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs
- Að veita íbúum persónulega og einstaklingsmiðaða umönnun.
- Að sinna félagslegum þörfum íbúa og stuðla að vellíðan þeirra.
2. Starf í býtibúri - 40% starf
Helstu verkefni:
- Umsjón með býtibúri
- Ábyrgð á mátmálstímum, frágangi og þrifum í býtibúri
- Að aðstoða íbúa á matmálstímum og tryggja að íbúar fái einstaklingsmiðaða þjónustu
- Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast býtibúri
Starfsfólk í umönnun sinnir fjölbreyttum verkefnum og er enginn vinnudagur eins. Það starfar náið með íbúum og aðstoðar þá meðal annars við fataskipti, böðun, salernisferðir, matmálstíma, lyfjainntöku og veitir félagslegan stuðning.
Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar -
Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
