Heilsuvernd er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu.
Heilsuvernd er einkarekið og ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu, læknisþjónustu og rekstur hjúkrunarheimila auk nýsköpunar á sviði heilbrigðisþjónustu. Markmið Heilsuverndar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan.
Heilsuvernd í Urðarhvarfi er starfrækt í björtu og nýju húsnæði á besta stað við Elliðaárdalinn. Starfsandi og aðstaða er til fyrirmyndar og við höfum metnað til að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu við alla sem til okkar leita. Þá leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi.
Þjónusta félagsins er mjög vaxandi og viljum við því bæta við í okkar sterka teymi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og vill vera hluti af öflugu þverfaglegu teymi. Starfshlutfall er umsemjanlegt.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Læknisfræðileg ráðgjöf og þjónusta
· Þverfagleg teymisvinna
· Þátttaka í þróunar- og gæðastarfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Íslenskt lækningaleyfi
· Sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
· Jákvæðni og þjónustulund
· Góð hæfni í samskiptum og teymisvinnu
· Góð íslenskukunnátta er æskileg
Umsóknarfrestur opinn
Umsóknum skal fylgja ferilskrá, starfsleyfi Landlæknis og kynningarbréf.
Öllum umsóknum verður svarað.
Ráðið er í starfið óháð kyni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Teitur Guðmundsson, forstjóri (teitur@hv.is).
