Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða starfsmann í iðju- og dagþjálfun á Hlíð. Um 80-90% starfshlutfall er að ræða eftir samkomulagi. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum en vill um leið vera hluti af sterku teymi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í lok ágúst byrjun september.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sjá um og leiða fjölbreytta virkni fyrir notendur í dagþjálfun og íbúa heimilisins, hvetja til virkrar þátttöku og stuðla að aukinni vellíðan og lífsgæðum
- Þjónusta við notendur dagþjálfunar og íbúa heimilisins sem eiga það sameiginlegt að búa við skerta færni vegna öldrunar og/eða veikinda
- Aðstoð við athafnir daglegs lífs, félagsleg örvun og stuðningur í þeim tilgangi að hámarka lífsgæði notenda og viðhalda sjálfstæði þeirra
- Starfinu fylgja mikil samskipti við notendur, íbúa, aðstandendur og samstarfsfólk og skal umhyggja og virðing endurspeglast í öllum þáttum starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Almenn menntun
- Áhugi á þjónustu við aldraða og þá sem búa við langvinn og/eða alvarleg veikindi er skilyrði og kostur að búa yfir reynslu á því sviði
- Vilji og áhugi til að starfa eftir Eden hugmyndafræðinni
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileikar í mannlegum samskiptum
- Að geta unnið sem hluti af heild og með öðrum í þeim tilgangi að hámarka árangur
- Góð kunnátta í íslensku
Um Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili veita almenna og sérhæfða dag- og sólarhringsþjónustu fyrir aldraða og aðra sem búa við skerta færni vegna langvinnra eða flókinna veikinda. Um er að ræða fjölbreytta og áhugaverða starfsemi sem er í stöðugri þróun. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, hlýjan heimilisbrag og lífsgæði íbúa sem og annarra notenda þjónustunnar.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 04. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Harpa Dögg Sigurðardóttir forstöðumaður harpadogg@hlid.is eða Jóhanna Margrét Gunnarsdóttir deildarstjóri johannamg@hlid.is.
Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningasíðu Heilsuverndar Hjúkrunarheimilis.
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili leggja áherslu á góðvild og gleði í öllum samskiptum því hver dagur er dýrmætur!
Frekari upplýsingar um Heilsuvernd Hjúkrunarheimili má finna á heimasíðunni hlid.is
