26 verslanir um land alltFull TimeEntry-levelPosted 2mo ago
Krónan leitar að öflugu starfsfólki í starf vaktstjóra. Verkefni vaktstjóra eru að aðstoða og styðja við verslunarstjóra og stuðla að hvatningu meðal starfsfólks til að ná settum markmiðum.
Starfið felur í sér aðstoð við rekstur verslunar þar sem helstu verkefni eru:
- Efla hópinn í að búa til góða upplifun fyrir viðskiptavini
- Daglegt skipulag til að fylgja eftir verkferlum og gæðum
- Vaktaplön og þjálfun
- Verkstýring starfsfólks
- Ábyrgð og umsjón með fjármunum
- Almenn verslunarstörf
Hæfniskröfur:
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
- Aldurstakmark er 18 ára
- Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
Fríðrindi í starfi:
- Styrkur til heilsueflingar
- Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
- Aðgangur að Velferðarþjónustu Krónunnar
Krónan býður upp á fjölbreyttan og metnaðarfullan vinnustað þar sem hægt er að hafa áhrif og leiða verkefni með sýnilegum árangri. Hjá Krónunni starfa um þúsund manns, við eigum ánægðustu viðskiptavinina 8. árið í röð og erum með jafnlaunavottun VR.
